spot_img
HomeFréttirDurant hugsanlega klár fyrir fyrsta deildarleikinn

Durant hugsanlega klár fyrir fyrsta deildarleikinn

18:15

{mosimage}

 

(Kevin Durant) 

 

Af allt gengur upp ætti nýliðinn Kevin Durant að vera klár í slaginn í fyrsta deildarleik sinn með Seattle Supersonics þegar liðið mætir Denver Nuggest í fyrstu umferðinni í NBA deildinni. Durant meiddist á undirbúningstímabilinu þegar hann tognaði á ökkla.

 

Miklar vonir eru bundnar við Durant sem var valinn annar til Supersonics í nýliðavalinu í sumar. Durant fór í myndatöku vegna meiðslanna í ökkla og þar kom í ljós að ekkert var brotið en hann mun gangast undir endurmat á meiðslunum í næstu viku sem þýðir að hann missir af síðasta æfingaleik Supersonics á morgun þegar liðið mætir Phoenix Suns.

 

Mynd/Photo: AP

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -