14:00
{mosimage}
Jón Arnór í leik gegn Panathinaikos
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma leika sinn annan leik á þessu tímabili í Meistaradeildinni þegar þeir heimsækja Real Madrid. Eins og lesendur karfan.is ættu að muna átti Jón Arnór stórleik í fyrstu umferð þegar Roma heimsótti Evrópumeistara Panathinaikos en laut í lægri haldi í blálokin.
Real Madrid heimsótti Fenerbahce Ulker í Tyrklandi í fyrstu umferð og sigraði 80-72 þar sem Belginn Axel Hervelle var stigahæstur með 23 stig.Það má reikna með hörkuleik í Madrid í kvöld.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá leikinn og búa á Norðurlöndum þá er leikurinn sýndur á ViaSat2/TV2Sport og hefst kl 19:55. Fyrst farið er að minnast á körfubolta í sjónvarpi í Danmörku þá má benda á að á sama tíma og Real Madrid – Roma er á TV2sport þá er leikur Randers og Amager í beinni á DK4. Þar eigast við þjálfarnir Flemming Stie fyrrverandi leikmaður Tindastóls og Jesper Sörensen fyrrverandi leikmaður KR. Þá er Helgi Freyr Margeirsson leikmaður Randers.
En auk leik Roma í kvöld fara fram fimm aðrir leikir í Meistaradeildinni.
Mynd: www.euroleague.net



