18:48
{mosimage}
Marta á Snæfellsjökli
Allur ágóðinn af leiknum í kvöld[gærkvöld] mun renna til Mörtu Guðmundsdóttur. Marta spilaði með meistaraflokki kvenna í Keflavík veturinn 1988-89. Eftir það spilaði hún svo með meistaraflokki kvenna í Grindavík í mörg ár. Hún á að baki 2 A landsliðsleiki fyrir Íslands hönd. Marta greindist með krabbamein fyrir 2 árum en náði að sigrast á því. Eins og flestir Íslendingar muna að þá gekk hún yfir Grænlandsjökul fyrir nokkru.
Marta greindist aftur með krabbamein fyrir nokkru og hefur hún hafið enn eina baráttuna við þann sjúkdóm. Því ákvað körfuknattleiksdeild Keflavíkur að láta allan ágóða af leiknum við Grindavík renna til Mörtu og fjölskyldu hennar.
Mynd: www.krabb.is – JR



