spot_img
HomeFréttirLárus Ingi nýr formaður KKDÍ

Lárus Ingi nýr formaður KKDÍ

8:23

{mosimage}

Í gærkvöldi fundaði stjórn KKDÍ og á fundinum baðst Kristinn Óskarsson lausnar frá starfi formanns þar sem hann er önnum kafinn í MBA námi við Háskóla Íslands.  Stjórnin ákvað að Lárus Ingi Magnússon yrði formaður, Eggert Þór Aðalsteinsson yrði gjaldkeri og Kristinn Óskarsson er ritari félagsins. 

 

 

Lárus er því fjórði formaður félagsins frá endurvakningu þess.

 

Þetta haust hefur verið mjög annasamt hjá stjórn KKDÍ, má þar helst nefna ferð dómara á Eurobasket á Spáni, samninga við styrktaraðila, búningakaup og allhliða samning við KKÍ.  Félagið stendur vel og er samhugur í stjórn félagsins og metnaður mikill til góðra verka. 

www.kkdi.is 

Mynd: Gunnar Freyr Steinsson

Fréttir
- Auglýsing -