06:00
{mosimage}
(Raed Mostafa í leik með Hamar á tímabilinu)
Hamar úr Hveragerði létu Raed Mostafa fara og því lék hann ekki með Hamar í gærkvöldi þegar þeir mættu Val í Lýsingarbikarnum. Mostafa þótti ekki standa undir væntingum og því fór sem fór.
Mostafa sem er Þjóðverji skoraði 12 stig í leik í Iceland Express-deildinni en hann lék alla átta leiki Hamars sem sitja á botni Iceland Express-deildar karla með aðeins einn sigur úr átta leikjum.
Mostafa var þriðji stigahæsti leikmaður liðsins á eftir Marvin Valdimarssyni og George Byrd.
Mynd: hamarsport.is



