spot_img
HomeFréttirScottie Pippen til Svíþjóðar

Scottie Pippen til Svíþjóðar

19:24

{mosimage}

Eins og karfan.is greindi frá í september hefur Scottie Pippen samið við finnska liðið ToPo um að leika tvo leiki með þeim í finnsku deildinni. Nú hefur kappinn einnig samið við sænska liðið Sundsvall Dragons um að leika einn leik með þeim í leiðinni.

 

Það verður þann 11. janúar sem hann leikur með sænska liðinu gegn botnliði Akropol.

Það er spurning hvað hefði gerst ef KR b hefði komist áfram í bikarnum, þeir hafa oft verið orðaðir við hetjur fortíðarinnar.

[email protected]

Mynd: Ekki vitað

Fréttir
- Auglýsing -