spot_img
HomeFréttirJakob Örn með 9 stig í tapleik gegn efsta liðinu

Jakob Örn með 9 stig í tapleik gegn efsta liðinu

11:45

{mosimage}

Univer KSE mættu efsta liði Ungverskudeildarinnar Falco KC og töpuðu þeir 100-81, staðan í hálfleik var 53-39.  Jakob Örn skoraði 9 stig.

Jakob Örn og félagar féllu niður í sjöunda sæti deildarinnar með tapinu fyrir toppliði Falco KC 100-81 en liðin mættust á heimavelli Falco KC.  Staðan eftir fyrsta leikhluta var 22-15 heimamönnum í vil en þeir leiddu svo 53-39 í hálfleik.  Heimamenn héldu áfram að bæta við og voru þeir einfaldlega of sterkir fyrir Jakob Örn og félaga, staðan eftir þrjá leikhluta 77-59.  Fjórði leikhluti var nokkuð jafn og lokatökur 100-81.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 9 stig, tók 2 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal 3 boltum.

Næsti leikur Univer KSE er gegn Kaposvári KK miðvikudaginn 19. desember.

www.kr.is/karfa

Mynd: www.univertsport.hu

 

Fréttir
- Auglýsing -