10:00
{mosimage}
Spurning hvort Kristinn Óskarsson verður í þessum stellingum í Frakklandi
Íslenskir dómarar fengu á dögunum verkefni á alþjóðlegri grundu en þeir dæma í Belgíu og Frakklandi nú á næstu dögum.
Kristinn Óskarsson heldur til Frakklands og dæmir 9. Janúar leik USO Basket og MiZo Pécs frá Ungverjalandi í Euroleague kvenna.
Daginn eftir dæmir hann svo leik US Valenciennes og pólska liðsins Lotos Gdynia í sömu keppni.Meðdómarar í báðum leikjunum eru þeir frá Carlos Santos Portúgal og Francisco Arana frá Spáni.
Sigmundur Már Herbertsson verður svo í Belgíu og Frakklandi að dæma dagana 15. til 17. janúar. 15. Janúar dæmir hann leik Dexia Mons og Banvit frá Tyrklandi, sem slógu KR út, í EuroCup karla. Meðdómarar verða þau Chantal Julien frá Frakklandi og Haydn Jones frá Wales.
Daginn eftir dæmir hann í Frakklandi leik US Valenciennes og Kosit frá Slóvakíu í Euroleague kvenna. Haydn Jones dæmir þann leik með Sigmundi en í stað Julien kemur Rúmeninn Stelian Banica.
Þann 17. halda svo Sigmundur og Jones aftur til Belgíu og dæma aftur hjá Dexia en nú í Euroleague kvenna. Þær mæta pólska liðinu Lotos Gdynia og verður Julien aftur með þeim í þessum leik.
Það er því ljóst að það er nóg framundan hjá íslenskum dómurum á erlendri grundu.
Mynd: www.vf.is



