HomeFréttirNets tapa 18. leiknum - Nýtt NBA-met

Nets tapa 18. leiknum – Nýtt NBA-met

New Jersey Nets slógu NBA met í nótt þegar þeir töpuðu sínum 18. leik í vetur og eru enn án sigurs. Dallas Maveriscks voru allt of sterkir fyrir þetta niðurbrotna lið sem virðist gjörsamlega heillum horfið eftir að hafa látið frá sér alla sína bestu leikmenn á síðustu árum og misst marga aðra í meiðsli nú í upphafi vetrar.
Á meðan tryggðu Orlando sig á toppi Austurdeildarinnar með sigri á NY Knicks, Atlanta vann stórsigur á Toronto og Phoenix, sem var á toppi NBA í upphafi vikunnar, töpuðu sínum öðrum leik í röð, nú gegn LeBron James og Cleveland Cavaliers, en James skoraði aðeins 12 stig í leiknum.

Úrslit næturinnar/Tölfræði:

 
Toronto 115
Atlanta 146
 
Milwaukee 102
Washington 104
 
New York 104
Orlando 118
 
Phoenix 90
Cleveland 107
 
Dallas 117
New Jersey 101
 
Memphis 97
Minnesota 95
 
Philadelphia 106
Oklahoma City 117
 
Detroit 85
Chicago 92
 
Indiana 105
Sacramento 110
 
Houston 102
LA Clippers 85
 
Mynd/AP
Fréttir
- Auglýsing -