HomeFréttirSvipmyndir: Blikar jöfnuðu Fjölni að stigum

Svipmyndir: Blikar jöfnuðu Fjölni að stigum

 
Jeremy Caldwell sallaði niður 24 stigum í gærkvöldi þegar Breiðablik vann sinn annan deildarsigur með því að leggja Fjölnismenn 84-87 í Grafarvogi. Christopher Smith var stigahæstur í liði Fjölnis með 23 stig og 11 fráköst.
Fjölnir leiddi 50-45 í hálfleik og staðan var 68-66 heimamönnum í vil fyrir lokasprettinn en Ágúst Angantýsson kom Blikum í 68-69 með þriggja stiga skoti í upphafi fjórða leikhluta og Blikar leiddu eftir það allt til leiksloka.
 
Jonathan Schmidt gerði 20 stig og tók 11 fráköst fyrir Blika í gær en næstur á eftir Smith í liði Fjölnis var Arnþór Freyr Guðmundsson með 16 stig. Blikar og Fjölnir eru því jöfn að stigum, bæði með 4 stig, eftir 10 umferðir og deila með sér næstneðsta sæti deildarinnar en á botninum hvílir FSu án stiga.
 
Fréttir
- Auglýsing -