Í bikarkeppni KKÍ kvenna á laugardag fór fram leikur Þórs frá Akureyri og heimastúlkna í B-liði Keflavíkur. Það skemmtilega við þennan leik var sú staðreynd að Keflavík telfdi þarna fram mörgum af þeim gömlu leikmönnum sem komu með titla á færiböndum fyrir félagið á síðustu áratugum. Þarna voru mættar saman Anna María Sveinsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir , Erla Reynisdóttir, Svandís Gylfadóttir, Kristín Blöndal og fleiri..
Liðið var svo styrkt með 3 ungum leikmönnum og þar fékk fyrrum leikmaður og núverandi þjálfari, Margrét Sturlaugsdóttir að leika í fyrsta skipti með dóttur sinni Lovísu Falsdóttir sem er aðeins 15 ára gömul. „Þetta var alveg æðislega gaman að koma þessum stúlkum öllum saman og spila. Þetta var að vísu töluvert erfiðara en ég man eftir þessu. Úthaldið var til dæmis alltaf miklu betra hjá mér , það mætti halda að maður sé að eldast. „ sagði Anna María Sveinsdóttir í lok leiks glettin á svip. Svo fór að ungar og sprækar Þórs stúlkur sigruðu reynsluboltana úr Keflavík, en á tíðum sýndu þær „gömlu“ að þær hafa lítlu gleymt.
Mynd: Anna María og Björg Hafsteins gerðu garðinn frægan á sínum tíma. Í bakgrunni glittir í búninga sem hanga í rjáfum Toyotahallarinar. En Anna María og Björg áttu svo sannarlega sinn hlut í flestum af þeim titlum sem þessir búningar eru tákn fyrir.




