HomeFréttirSvipmyndir: Fjölnir vann tvíhöfðann

Svipmyndir: Fjölnir vann tvíhöfðann

 
Skallagrímur fékk Fjölni í tvíhöfðaheimsókn um helgina í Subwaybikarnum þar sem Fjölnismenn höfðu sigur í báðum leikjum og því er félagið komið með bæði karla- og kvennalið sín áfram í 8-liða úrslit.
Mjótt var á mununum í kvennaleiknum sem Fjölnir vann 49-54. Bergdís Ragnarsdóttir var stigahæst í liði Fjölnis með 15 stig en í liði Skallagríms var Íris Gunnarsdóttir með 17 stig og Júlía Þóra Hálfdánardóttir var með 9 stig og 20 fráköst.
 
Karlaleikinn vann Fjölnir 63-84 þar sem Christopher Smith gerði 25 stig og tók 7 fráköst fyrir Fjölni en í liði Skallagríms var Silver Laku atkvæðamestur með 20 stig.
 
Sigríður Leifsdóttir tók myndir á báðum leikjum og má sjá afraksturinn hér að neðan.
 
Fréttir
- Auglýsing -