Boston Celtics unnu sinn áttunda sigur í röð í nótt þegar þeir lögðu Milwaukee að velli, en þeir sitja nú á toppi Austurdeildarinnar ásamt Orlando Magic sem unnu einnig sinn leik í nótt. Þá unnu NJ Nets góðan útisigur á Chicago Bulls og hafa nú unnið tvo leiki af síðustu þremur eftir að hafa sett NBA-met með því að tapa fyrstu 18 leikjum sínum.
Cleveland Cavaliers voru hins vegar ekki svo heppnir því að þeir máttu sætta sig við tap gegn Memphis Grizzlies í framlengdum leik þrátt fyrir að LeBron James hafi skorað 43 stig.
Úrslit næturinnar / Tölfræði:
Toronto 94 Minnesota 88
Charlotte 107 Denver 95
Boston 98 Milwaukee 89
Chicago 101 New Jersey 103
Memphis 111 Cleveland 109
New Orleans 96 Sacramento 94
Dallas 102 Phoenix 101
LA Clippers 86 Orlando 97




