HomeFréttirSnæfell og Haukar mætast í kvöld

Snæfell og Haukar mætast í kvöld

 
Í kvöld mætast Snæfell og Haukar í Iceland Express deild kvenna en viðureign þessara liða átti að fara fram í síðustu umferð en fresta varð leiknum sökum veðurs. Leikurinn hefst í kvöld kl. 19:15 í Stykkishólmi.
Von er á miklum slag í Hólminum í kvöld þar sem bæði lið hafa 6 stig í deildinni og eru skammt á eftir Keflavík sem hefur 10 stig í 4. sæti deildarinnar sem síðasta sætið til þess að ná inn í A-riðil þegar deildinni verður skipt upp.
 
Haukar höfðu nokkra yfirburði þegar liðin mættust að Ásvöllum en þá sigruðu Haukar 70-43.
 
Fréttir
- Auglýsing -