HomeFréttirJón Arnór með á laugardag

Jón Arnór með á laugardag

 Jón Arnór hefur verið útskrifaður af sjúkralista Granada og verður í liðinu á laugardag þegar liði mætir Estudiantes.
Jón Arnór meiddist í fyrsta leik liðsins á tímabilinu og hefur verið frá síðan. Í samtali við Karfan.is í síðustu viku tjáði hann okkur að líðan hans væri mjög góð og að hann væri á undan áætlun hvað varðar bata sinn. Nú hafa Granada menn gefið það út á heimasíðu sinni að kappinn er útskrifaður og mun vera í liðinu á laugardag kl 19:00 gegn Estudiantes. Lið Granada er í 9 til 17 sæti ACB deildarinnar á Spáni og eru jafnir að stigum Estudiantes, en deildin er gríðarlega jöfn.
Fréttir
- Auglýsing -