Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Boston Celtics unnu sinn ellefta leik í röð er þeir höfðu nauman 110-105 sigur gegn Memphis Grizzlies. Sex leikmenn Boston gerðu 10 stig eða meira í leiknum og þeirra atkvæðamestur var Paul Pierce með 19 stig og 6 stoðsendingar. Atkvæðamestur í liði Grizzlies var framherjinn Rudy Gay með 23 stig og 7 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
Orlando Magic 106-98 Indiana Pacers
Philadelphia 76ers 117-101 Golden State Warriors
Dallas Mavericks 94-90 New Orleans Hornets
Denver Nuggets 102-93 Oklahoma City Thunder
Utah Jazz 108-110 Minnesota Timberwolves
Los Angeles Clippers 97-95 Washington Wizards




