HomeFréttirBæði Snæfell og Keflavík fengu heimaleiki

Bæði Snæfell og Keflavík fengu heimaleiki

 
Rétt í þessu var dregið í 8-liða úrslit í Subwaybikarkeppni karla og kvenna. Það var Egill ,,Þykki“ Einarsson sem sá um bikardráttinn að þessu sinni og tilvalið að hann skyldi draga þar sem hann fór á kostum í Stjörnuleik frægra gegn gömlu landsliðskempunum. 8-liða úrslitin verða svo leikin dagana 16.-18. janúar 2010.
Egill ,,Þykki“ Einarsson gaf það út við dráttinn að hann vildi mæta gömlu landsliðskempunum á nýjan leik þar sem lið frægra hefði ekki fengið nægilegan undirbúning fyrir Stjörnuhelgina. Sagðist hann vera byrjaður að skipuleggja næsta Stjörnuleik og ef marka má viðbrögðin sem viðureign frægra gegn landsliðskempunum fékk þá væri ekki óvitlaust að endurtaka leikinn.
 
Af bikardrættinum er það að segja að í kvennaflokki verður stærsti leikurinn viðureign Keflavíkur og Hamars. Keflavík fékk heimavöllinn og spurning hvort að hann dugi þeim gegn sjóðheitum Hamarskonum sem nýverið lögðu topplið KR og það í DHL-Höllinni.
 
Ljóst er að Fjölnir eða Laugdælir komast í undanúrslit í kvennaflokki og berast flest spjót að Fjölniskonum sem ekki hafa tapað leik í 1. deild kvenna til þessa. Njarðvíkingar taka á móti Þór Akureyri og Snæfell fær Hauka í Heimókn í Stykkishólm svo um er að ræða tvær úrvalsdeildarviðureignir í 8-liða úrslitum kvenna þetta árið.
 
Eingöngu úrvalsdeildarlið eru eftir í karlaflokki og ber þar hæst að boðið verður upp á grannaslag í 8-liða úrslitum þegar Keflavík tekur á móti Njarðvík. Snæfell fær Fjölni í heimsókn og Tindastóll fékk heimaleik gegn Grindavík og hljóta Stólarnir að gleðjast enda bað Svavar Atli Birgisson bara um heimaleik í bikarnum þegar Karfan.is ræddi við hann á dögunum.
 
Þá verður innansveitarkrónika þegar Breiðablik tekur á móti ÍR í Smáranum.
 
8-liða úrslit kvenna:
 
Fjölnir – Laugdælir
Keflavík – Hamar
Njarðvík – Þór Akureyri
Snæfell – Haukar
 
8-liða úrslit karla:
 
Snæfell – Fjölnir
Keflavík – Njarðvík
Tindastóll – Grindavík
Breiðablik – ÍR
 
Ljósmynd/Njarðvík hafði betur gegn Keflavík í Ljónagryfjunni í deildarviðureign liðanna um daginn.
Fréttir
- Auglýsing -