Íslandsmeistarar KR taka á móti Snæfell kl. 19:15 í DHL-Höllinni í kvöld í fyrsta leik elleftu og síðustu umferðar ársins. Leikinn þarf að spila í kvöld en ekki á fimmtudag eða föstudag eins og jafnan er gert þar sem Íslandsmeistararnir eru á leið sinni til Kína á næstu dögum.
Snæfell hefur 14 stig í 5. sæti deildarinnar en KR er á toppnum með Njarðvík og Stjörnunni og hefur 16 stig. Með sigri í kvöld geta Hólmarar jafnað KR að stigum en hafi KR betur skjótast þeir einir á toppinn um stund.




