HomeFréttirJón Arnór: Miklu þroskaðri og reyndari núna

Jón Arnór: Miklu þroskaðri og reyndari núna

 
 
Tíu stig á sautján mínútum er ekki slæm frammistaða hjá leikmanni í spænsku úrvalsdeildinni, einni bestu deild í heimi. Hún fær samt nýtt vægi þegar um er að ræða leikmann að stíga sín fyrstu skref á vellinum eftir að hafa unnið sigur á hrikalegum bakmeiðslum sem sendu hann beint á sjúkrahús og áttu að halda honum frá keppni í fjóra mánuði. Þetta ritar Óskar Ófeigur Jónsson í Fréttablaðinu um helgina.
Jón Arnór Stefánsson lék sinn fyrsta leik með CB Granada um síðustu helgi og samdi þar með nýjan kafla í ævintýralegri endurkomu sinni.
 
„Það var ofboðslega gaman að koma til baka svona snemma. Ekki bara að koma til baka heldur að líða eins og mér líður núna. Mér finnst ég vera sterkur. Ég er með litla verki og miklu minni verki en þeir héldu," segir Jón Arnór og ekkert bendir til þess að hann hafi farið af stað of snemma.
 
Fréttir
- Auglýsing -