Meistarar LA Lakers áttu ekki í miklum vandræðum með botnlið NJ Nets í nótt þar sem þeir ummu sannfærandi sigur. Á sama tíma unnu Orlando Magic góðan sigur á Portland Trailblazers, SA Spurs unnu Indiana þar sem Tim Duncan tryggði sigurinn með troðslu rétt fyrir leikslok og Chicago vann frækinn sigur á Atlanta Hawks í framlengdum leik.
Hér eru úrslit næturinnar/Tölfræði:
Charlotte 102Utah 110
Orlando 92 Portland 83
Philadelphia 107 LA Clippers 112
New Jersey 84 LA Lakers 103
Chicago 101 Atlanta 98
San Antonio 100 Indiana 99
Milwaukee 95 Sacramento 96
Houston 95 Oklahoma City 90
Phoenix 121 Washington 95




