HomeFréttirJakob og félagar eiga toppslag í kvöld

Jakob og félagar eiga toppslag í kvöld

 
Stórleikur fer fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar toppliðin Norrköping og Sundsvall mætast á heimavelli Norrköping. Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall fara því á einn erfiðasta útivöll Svíþjóðar í kvöld og ætla þeir sér að auka hraðann aðeins til að fá andstæðinga til að gera hluti sem þeir eru ekki vanir.
Norrköping trónir á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 40 stig en Sundsvall er í 2. sæti með 34 stig og því afar mikilvægur leikur fyrir Jakob og félaga ætli þeir sér ekki að missa Norrköping of langt frá sér. Karfan.is ræddi við Jakob um leikinn en hann segir Norrköping hafa breiðasta hóp deildarinnar.
 
,,Norrköping er búið að vera besta liðið í allan vetur og hafa einungis tapað tveimur leikjum. Þeir eru með breiðasta mannskapinn í deildinni og 10 menn sem gætu byrjað inná í öðrum liðum. Þetta er reynslumikið lið með tvo mjög góða bakverði sem sjá að mestu leiti um sóknarleikinn hjá þeim en einnig eru þeir með hávaxna miðherja sem erfitt er að eiga við,“ sagði Jakob sem um þessar mundir er sjötti stigahæsti leikmaður deildarinnar með 17,59 stig að meðaltali í leik. Þá má geta þess að þrír leikmenn sem eru ofar en Jakob á listanum hafa leikið 7 leiki eða minna á meðan Jakob hefur leikið alla 22 leiki Sundsvall til þessa!
 
,,Við ætlum að reyna að koma þeim útúr þeirra leik. Þeir vilja spila á sínum hraða og við ætlum að auka hraðann aðeins og reyna að fá þá til að gera hluti sem þeir eru ekki vanir. Þetta er mikið sóknarlið og ef við náum uppi góðum varnarleik þá eigum við möguleika á sigri,“ sagði Jakob en hægt verður að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu leiksins á síðu  sænska sambandsins.
 
Helgi Már Magnússon og félagar hans í Solna Vikings verða einnig á parketinu í kvöld þegar Solna tekur á móti 08 Stockholm í Solna Hallen. Solna er í 4. sæti deildarinnar með 32 stig en 08 Stockholm hefur 10 stig í tíunda og næstneðsta sæti deildarinnar.
 
Fréttir
- Auglýsing -