HomeFréttirPáll Axel jafnaði met Vals Ingimundarsonar

Páll Axel jafnaði met Vals Ingimundarsonar

Páll Axel Vilbergsson fór mikinn í leik Grindavíkur og Tindastóls nú í kvöld en kappinn skoraði 54 stig. Þar með er Páll Axel búinn að jafna rúmlega 21 árs gamalt met Vals Ingimundarsonar sem koraði 54 stig í leik Tindastóls og Hauka í október 1988 en sá leikur var reyndar þríframlengdur.

 

Eins og menn muna skoraði Marvin Valdimarsson 51 stig fyrir Hamar fyrr í vetur en nú hefur Páll Axel skotið því ref fyrir rass og í raun má segja að hann hafi gert betur en Valur Ingimundarson hér um árið því Valur skoraði sín stig á 55 mínútum en Páll Axel spilaði aðeins 35 mínútum.

Það er þó athyglisvert að bera saman skotnýtingu Vals og Páls Axels í þessum leikjum.
Valur hitti úr 14 af 18 tveggja stiga skotum sínum sem gerir 77,8% nýtingu, 2 af 6 í þriggja sem er 33,3% nýting og 20 af 22 vítum sem er 90,9% nýting
Páll Axel hitti úr 8 af 11 tveggja stiga skotum sínum sem gerir 73% nýtingu, 10 af 18 í þriggja sem gerir 56% og 8 af 12 vítum sem gerir 67%.

Sá sem skorað hefur flest stig í einum leik í úrvalsdeild frá upphafi heitir John Johnson sem skoraði 71 stig fyrir Fram gegn ÍS í nóvember 1979 en þess má geta að á þeim tíma var ekkert til sem heitir þriggja stiga lína og skoraði John 26 tveggja stiga körfur og hitti úr 19 af 28 vítum.

 
Fréttir
- Auglýsing -