spot_img
HomeFréttirDómaranámskeið næstu helgi

Dómaranámskeið næstu helgi

 
Dómaranámskeið verður haldið næstkomandi laugardag og sunnudag. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Námskeiðið verður á Ásvöllum í Hafnarfirði. Á laugardeginum og sunnudagsmorgni verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á sunnudegi.
Dagskrá:
Laugardagur 16. janúar
Ásvellir – Hafnarfirði
14.30-18.00 Fyrirlestrar og umræður – bóklegt
 
Sunnudagur 17. janúar
Ásvellir – Hafnarfirði
10-12 Fyrirlestur og umræður – bóklegt
12 Bóklega prófið
13-16 Verklega prófið
 
Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans.
 
Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta.
 
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 15. janúar. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.
 
Skráning er á [email protected] og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, heimilisfang, e-mail og félag.
Ljósmynd/ Rögnvaldur Hreiðarsson hefur dæmt þá ófáa stórleikina.
 
Fréttir
- Auglýsing -