HomeFréttir16 stig Jóns Arnórs dugðu skammt

16 stig Jóns Arnórs dugðu skammt

16 stig frá Jón Arnór Stefánssyni dugðu skammt í tapi Granada gegn Bilbao í dag. Jón var stigahæstur í liði sínu en kappinn spilaði 32 mínútur.
 CB Granada tapaði með tólf stigum á heimavelli fyrir Bilbao, 66-78 en í hálfleik leiddi liðið með einu stig 36-35. Sem fyrr segir var Jón stigahæstur í Granada liðinu að þessu sinni ásamt því tók hann 2 fráköst og stal 2 boltum.  Greinilegt að pilturinn er að stimpla sig rækilega inn á Spáni þrátt fyrir tap hjá liði hans í dag. 
Fréttir
- Auglýsing -