spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Úrslitaleikur í Keflavík

Leikir dagsins: Úrslitaleikur í Keflavík

 
Síðasta umferðin í venjulegri deildarkeppni í Iceland Express deild kvenna fer fram í kvöld og að umferðinni lokinni verður deildinni skipt upp í A og B riðil. Keflavík og Haukar munu leika hreinan úrslitaleik um fjórða og síðasta sætið í A-riðli en Haukar þurfa að vinna leikinn með tveggja stiga mun eða meira til að komast í A-riðil.
Allir leikirnir í síðustu umferð IE kvenna í kvöld hefjast kl. 19:15 en riðlarnir eru alveg ljósir ef frá er talin úrslitaviðureign Keflavíkur og Hauka í kvöld. Keflvíkingar gerðu í fyrri umferðinni góða ferð á Ásvelli og lögðu Hauka með eins stigs mun og því þurfa Haukar helst að vinna leikinn í kvöld með 2 stigum eða meira til að ná innbyrðisviðureigninni í sínar hendur.
 
Aðrir leikir kvöldsins í IE kvenna:
 
Hamar-Snæfell
Valur-KR
Njarðvík-Grindavík
 
Þá fer einn leikur fram í 1. deild karla þegar Ármann tekur á móti Þór Þorlákshöfn í Laugardalshöllinni kl. 19:15. Ármann hefur 8 stig í 6. sæti deildarinnar en Þór Þorláksöfn er með 14 stig í 5. sæti og eru um þessar mundir síðasta liðið inn í úrslitakeppni 1. deildar.
 
 
Ljósmynd/ Bryndís Hanna og Haukakonur mæta í Toyotahöllina í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -