Solna Vikings mættu Plannja á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og máttu sætta sig við 102-86 ósigur. Helgi Már Magnússon gerði 13 stig í liði Solna sem hafa nú 36 stig í 4. sæti deildarinnar.
Ósigurinn í gærkvöldi var þriðji deildarósigur Solna í röð. Auk þess að gera 13 stig í leiknum var Helgi Már líka með 4 fráköst á þeim 28 mínútum sem hann lék. Andrew Mitchell var stigahæstur hjá Solna með 21 stig en Brandon McKnight gerði 29 stig í sigurliði Plannja.
Jakob Örn Sigurðarson og liðsfélagar hans í Sundsvall Dragons stíga á svið í kvöld er þeir taka á móti Jamtland sem hefur aðeins 12 stig í næstneðsta sæti deildarinnar. Með sigri í kvöld getur Sundsvall jafnað Plannja í 42 stig og þá deila liðin 2. sætinu saman.



