Leikmenn KFÍ mættu tilbúnir og hungraðir í mikilvæga leik þegar Valsmenn mættu vestur á firði í 1. deild karla í gærkvöldi. Strax í fyrsta leikhluta var tóninn gefinn og staðan eftir hann var 23 – 8 heimamönnum í vil. Ljóst að það yrði á brattann að sækja fyrir gestina. KFÍ liðið hélt einbeitingu sinni og varðist tilraunum Vals til þess að komast aftur inn í leikinn og að lokum fóru leikar svo að sannfærandi sigur KFÍ var í höfn, 89-65. KFÍ situr nú á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forystu.
Annar leikhluti var jafnari og mikil barátta á milli liðanna. KFÍ menn náðu að hrinda áhlaupi Vals í þessum fjórðung, sem fór 24 – 22 og í hálfleik var staðan 47 – 30 KFÍ í vil. Þá var Craig nokkur Schoen búinn að stela boltanum af Völsurum sjö sinnum, skora 12 stig og gefa 3 stoðsendingar. Þetta var gott framlag hjá Craig en það var auðvitað liðsheildin sem tryggði þessa stöðu því vörnin var búin að vera frábær eins og tölurnar sýna. Valsmenn áttu í töluverðum erfiðleikum með að finna leiðina að körfunni og þannig vörn næst aðeins með góðri samvinnu allra leikmanna.
Þriðji leikhluti var um margt svipaður og gerðu Valsmenn enn harða hríð að heimamönnum, enda farið að liggja á að narta í forskotið. Igor skoraði fyrstu körfuna fyrir KFÍ en það var Sigurður F. Gunnarsson sem setti tvær 3ja stiga körfur ofan í fyrir gestina og skyndilega var staðan orðin 49 – 36. Þá skellti KFÍ í lás og skiptu um gír, breyttu stöðunni í 58 – 40 og enn á ný fundu Valsarar fyrir ísköldum NV vindinum í fangið í leiknum. Eftir þennan leikhluta var staðan 71 – 51 og öllum orðið ljóst að ef KFÍ menn héldu einbeitingu sinni væri ekkert nema stórslys sem kæmi í veg fyrir heimasigur.
KFÍ var algjörlega í bílstjórasætinu í lokaleihlutanum eins og þeir höfðu stjórnað leiknum í raun allan leikinn. Til að gera langa sögu stutta þá fór hann 18 – 14 og 24 stiga sigur staðreynd. Sigurinn var liðsheildarinnar og allir komu við sögu. Það verður þó að geta framlags nokkurra leikmanna og fyrstan ber að telja Igor Tratnik sem setti niður 33 stig og tók 11 fráköst. Craig Schoen stýrði leik liðsins af öryggi og skoraði 16 stig, tók 3 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal 8 boltum.
Tveir leikmenn léku fyrsta leik sinn fyrir KFÍ á heimavelli í kvöld en það voru þeir Atli Rafn Hreinsson, 22 min, 6 stig og 2 fráköst. Þá lék Almar Guðbrandsson sinn fyrsta leik fyrir KFÍ. Hann skoraði 4 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.
Hjá gestunum var Byron Davis atkvæðamestur með 25 stig, 3 fráköst og 5 stoðsendingar. Sigurður Gunnarsson átti góða spretti og lauk leik með 11 stig og 8 fráköst.
Ljósmynd/ KFÍ.is – Igor treður með tilþrifum
Texti: www.kfi.is



