Íslandsmeistarar KR fá á morgun Bandaríkjamanninn Morgan Lewis.Morgan leikur stöðu 2-4 og þykir fjölhæfur körfuknattleiksmaður. Hann varð meistari með Findlay háskólanum í bandarísku annari deild háskólaboltans síðasta vetur. Þetta kemur fram á www.kr.is/karfa
Morgan Lewis er 195 sm og leikur í stöðu skotbakvarðar, lítils framherja og jafnvel undir körfunni við vissar aðstæður. Hann útskrifaðist frá Findlay háskólanum síðasta vor þar sem hann varð meistari í annarri deild háskólaboltans. Lið Findlay kláraði tímabilið taplaust með 36 sigra og var Morgan þar í aðalhlutverki með um 12 stig, 6 fráköst, tvo stolna bolta og tvær stoðsendingar að meðaltali. Ber stigaskorið þess merki hversu gríðarmikla breidd þetta lið hafði þar sem hann var næst stigahæstur.
Morgan þykir vera frábær íþróttamaður og var lykilmaður á báðum endum vallarins allan sinn feril í skólanum. Fékk hann oftast það hlutverk að gæta helsta sóknarmanns andstæðinganna auk þess sem hann þykir mjög sterkur „klárari“ eins og 60% skotnýting kappans ber vitni um. Aðalsmerki Findlay er sterk vörn og mikil barátta og átti Morgan þar stóran hlut að máli. Meðal verðlauna hans má nefna að hann var valinn besti leikmaður úrslitakeppnarinnar sitt síðasta ár þegar titlinum var landað.
Í sumar tók hann þátt í Orlando Invitational ásamt þó nokkrum leikmönnum sem þóttu líklegir til að komast í NBA deildina auk þess sem hann var kallaður til æfinga hjá Detroit Pistons í skamman tíma. Upp á síðakastið hefur hann svo leikið í ABA deildinni til að halda sér við meðan hann beið eftir rétta tækifærinu sem nú hefur boðist.



