Baráttumaðurinn Ómar Sævarsson var að vonum vonsvikinn með niðurstöðuna í bikarúrslitaleik Grindavíkur og Snæfells í gær þar sem gulir máttu sætta sig við silfrið. Ómar tók 10 fráköst í leiknum og skoraði 3 stig. Ómar sagði í samtali við Karfan.is eftir leik að hugsanlega hafi Sean Burton verið munurinn á liðunum.
,,Það gæti bara vel verið að Burton hafi verið munurinn en ég held bara að Snæfell hafi komið einbeittari í leikinn og framkvæmt sitt ,,gameplan“ betur en við og uppskáru því sigur,“ sagði Ómar en hvað lögðu Grindvíkingar upp með fyrir leikinn?
,,Við ætluðum ekki að láta þá vinna okkur fyrir utan þriggja stiga línuna, frekar inni í teig. Þeir bara unnu okkur fyrir utan þriggja, það er ekkert flóknara en það,“ sagði Ómar og bætti við að varnarleikur liðsins hefði verið í lagi á tímum.
,,Sóknin náði aldrei góðum dampi og við náðum ekki stemmningu í okkar aðgerðir og Snæfell voru einfaldlega betri á þessum degi,“ sagði Ómar en Grindvíkingar náðu að tefla fram fullum hópi í Höllinni í gær sem ekki hefur tekist í langan tíma.
,,Ég er klár á því að eftir þennan leik verðum við þéttari því það voru allir í búning og nú liggur leiðin bara upp á við frá þessu.“



