spot_img
HomeFréttirStigafjöldi í sigurleik getur skiptir máli

Stigafjöldi í sigurleik getur skiptir máli

 Nú þegar líður að loka leikjum Icelanda Expressdeildar karla þá er ekki seinna en vænna að fara yfir stöðu efstu og neðstu liða og hverjir eiga möguleika á hvaða sæti.  Aldrei fyrr hefur verið jafn mikilvægir leikir í deildinni og mun deildarmeistaratignin skila gríðarlega mikilvægum heimavallarrétti í ár. 
 Lið KR eru efstir og hafa verið það lungan af mótinu, í það minnsta seinnihlutann.  Þeir hafa komið sér upp gríðarlega sterkum hópi leikmanna og nokkuð ljóst að það verður erfitt verkefni að ná þeim stóra úr vesturbænum. Þeir eiga þó eftir 3 erfiða leiki gegn liðum sem öll banka á dyr deildarmeistaratitilsins. 
 
Næstu lið, Keflavík, Njarðvík, Snæfell, Stjarnan og Grindavík eru öll í einum hnapp, en þó aðeins tveimur sigrum frá toppnum.   Því hefur aldrei verið mikilvægara að sigra andstæðingin með fleiri stigum en þeir töpuðu í fyrri umferðinni.  T.a.m þá eigast við í kvöld Njarðvík og Stjarnan, en Stjarnan fór með sigur  í fyrri umferðinni með 7 stigum. Því er nokkuð mikilvægt fyrir Njarðvíkinga að sigra með í það minnsta 8 stigum ef liðin tvö myndu enda með jafn mörg stig að loknu móti.  Snæfell tapaði fyrir KR með 6 stigum í fyrri umferðinni og þurfa því að sigra með 7 stigum í síðustu umferð þegar þeir taka á móti Vestubæingum.  
 
Hamar, Tindastóll, Fjölnir, ÍR og Breiðablik slást svo öll um síðustu tvö sætin í úrslitakeppninni.  Hamar stendur þar best að vígi eftir gríðarlega mikilvægan sigur í gærkvöldi á Fjölni.  Hamarsmenn geta nánast tryggt sæti sitt í úrslitakeppninn í næstu umferð og um leið gert draum Breiðabliks að engu um sætið í úrslitum og sem verra er verður staða Breiðablik ansi slæm í baráttunni við fallið í 1. deild. 
 
Það er nokkuð ljóst að næstu umferðir í deildinni verða gríðarlega spennandi. Mörg "óvænt" úrslit hafa litið dagsins ljós í vetur og er ekkert lið öruggt með sitt sæti sem stendur þrátt fyrir að svo stutt sé eftir af mótinu. 
Fréttir
- Auglýsing -