spot_img
HomeFréttirVerður það enn einn stórsigur nágrannans ?

Verður það enn einn stórsigur nágrannans ?

 Í kvöld heldur Iceland Express deild karla áfram og stórleikur kvöldsins án nokkurs vafa er leikur risanna frá suðurnesjum, Njarðvík og Keflavík.  Breiðablik tekur svo á móti Hamar í fall- / úrslitakeppnisslagnum. Og svo taka FSU á mót liði Tindastóls. Leikirnir hefjast allir kl 19:15
 Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur verður í Toyotahöllinni og er veðmálið á kaffistofum bæjarins um er hvort liðið muni mæta til leiks í þetta skiptið, en síðustu viðureignir þessara liða hafa verið þannig að annað liðið hefur verið í bílstjórasætinu og lítið um spennu í leikjunum.  Keflvíkingar fóru illa með Njarðvíkinga í bikarkeppninni í síðustu viðureign liðanna en þar á undan tóku Njarðvíkingar deildarleikinn með 13 stigum. 
 
Fréttir
- Auglýsing -