HomeFréttirOddaleikur á miðvikudag: Haukar jöfnuðu í Höfninni

Oddaleikur á miðvikudag: Haukar jöfnuðu í Höfninni

 
Þór tapaði gegn Haukum í kvöld í öðrum undanúrslitaleik liðanna í 1. deild karla. Leikurinn endaði 73-89 fyrir Haukum. Haukar komu vel stemmdir til leiks og ætluðu að tryggja sér áfamhaldandi þátttöku í mótinu. Haukarnir juku muninn jafnt og þétt og voru yfir eftir 1. leikhluta 18-26.
Þórsarar komu sterkir inn í 2. leikhluta og minnkuðu jafnt og þétt og í hálfleik var staðan 44-48 fyrir Hauka. Haukar náðu að loka vel á Þórsara undir körfunni og Þórsurum gekk illa að fá stig inn í teignum. Seinni hálfleikur fór vel af stað og skiptast liðin á að skora fram eftir 3. leikhluta. Haukarnir juku forskot sitt svo hægt og rólega eftir því sem leið á leikinn. Staðan eftir 3. leikhluta 59-67. Í 4. leikhluta náðu Haukar mest 19 stiga forskoti en Þór naði svo að saxa niður forskotið eftir að Semaj Inge var rekinn af velli eftir að hafa fengið seinni tæknivilluna sína og laga aðeins stöðuna fyrir lokin. Lokastaðan var sem fyrr sagði 73-89 verðskuldaður sigur Hauka.
 
Atkvæðamestir hjá heimamönnum voru: Richard Field með 29 stig og 16 fráköst. Grétar Erlendsson var með 13 stig og 6 fráköst. Magnús Pálsson með 9 stig og 5 fráköst. Valur Sigurðsson var með 8 stig og 6 stoðsendingar. Baldur Ragnarsson var með 4 stig og 9 stoðsendingar. Emil Einarsson var með 6 stig. Þorsteinn Ragnarsson var með 4 stig.
 
Atkvæðamestir hjá Haukum voru: Semaj Inge með 31 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Óskar Magnússon var með 18 stig. Helgi Einarsson var með 11 stig og 6 fráköst.
 
Það er þá komið á hreint að það verður oddaleikur að Ásvöllum næsta miðvikudag þar sem það ræðst hvort Þór eða Haukar mæti Val eða Skallagrím í slag um laust sæti í úrvalsdeild.
 
Pétur Ingvarsson hafði þetta að segja eftir leikinn: ” Þetta var hörkuleikur og eins og úrslitaleikir eiga að vera. Það verður áfram barátta á miðvikudaginn í oddaleiknum. Þó svo að við náum forystu í báðum leikjunum að þá eru Þórsararnir ekkert að gefast upp og þetta verður hörkubarátta áfram.
 
Magnús J. Guðmundsson hafði þetta að segja eftir leik: ,,Við klárum þetta á miðvikudag.“
 
 
Umfjöllun: Hákon Hjartarson
Fréttir
- Auglýsing -