HomeFréttirValur eða Skallagrímur í úrslit?

Valur eða Skallagrímur í úrslit?

 
Vodafonehöllin að Hlíðarenda skartar oddaleik í kvöld þegar Valur tekur á móti Skallagrím í 1. deild karla. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1, eftir sinn hvorn heimasigur liðanna og það lið sem vinnur í kvöld mun mæta Haukum í úrslitum um laust sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð. 
Valsmenn tóku forystuna í einvíginu 1-0 með 95-89 sigri í Vodafonehöllinni en Valsmenn eiga heimaleikjaréttinn í seríunni. Í öðrum leik liðanna í Borgarnesi höfðu heimamenn betur 98-75 og því er oddaleikur í kvöld sem hefst kl. 20:00 að Hlíðarenda.
 
Fréttir
- Auglýsing -