HomeFréttirNCAA: Öskubusku ævintýrin á enda

NCAA: Öskubusku ævintýrin á enda

Undantekningalaust verður árlegt öskubuskuævintýri hjá einhverjum liðum sem fara í úrslit Háskólaboltans. Í ár varð engin breyting en þau helstu ævintýri sem höfðu farið af stað runnu sitt skeið þessa helgina og nú er komið á hreint hverjir munu keppa í "Final Four" næstu helgi. 
 Northern Iowa, ST Mary´s og Cornell háskólarnir voru þeir sem héldu uppi heiðri "minni" skólanna með því að leggja að velli (og um leið hjálpa veðbönkum um allan heim) stærri skóla sem spáð var nokkuð langt í keppninni. Northern Iowa lögðu hið geysilega sterka lið Kansas sem fyrir keppninna var "rank-að" númer 1 í landinu.  Þeirra ævintýri lauk hinsvegar gegn Micigan State á föstudag.  Michigan tryggði sig svo í undan úrslit í gær með sigri á Tennesee (skóli sem Íslendingurinn Damon Johnson iðkaði nám og spilaði með)  Þetta er sjötta skiptið sem Michigan State fer í Final Four á 10 árum. 
 
Eftir að Kansas háskólinn datt út hölluðust flestir að því að Kentucky yrðu meistarar.  En West Virginia háskólinn voru svo sannarlega ekki á því og slógu John Wall og félaga í KU úr keppninni og eru þeir komnir í undan úrslit.WV skoruðu 28 stig í fyrri hálfleik án þess þó að skora eina einustu 2ja stiga körfu. Á meðan var skotnýting KU skelfileg og klikkuðu þeir úr fyrstu 20 þriggjastiga skotum sínum í leiknum.  Biðin hefur verið löng fyrir West Virginia háskólann eftir sæti í Final Four en síðast þegar þeir fóru þangað var það árið 1959 eða sama ár og Fidel Castro tók við völdum í Kúbu.
 
Butler háskólinn heldur uppi heiðri Indianaríkis og eru komnir í Final Four. Butler lagði Kansas State 63:56 í hörku leik. Butler skólinn hélt þar með áfram sigurgöngu sinni sem varað hefur síðan í miðjum desember og hafa nú unnið 24 leiki í röð.  Af þeim liðum sem komin eru í Final Four má segja að Butler liðið sé það lið sem fáir spáðu svo góðu gengi. Svona Semi-Öskubuska þar á ferð en vissulega sigurhefð sem hefur verið mynduð þar og erfitt að losa sig við þann vana þegar svo langt er komið í keppnina.
 
Síðast en ekki síst er það annar tveggja risanna úr Norður Karólínu fylki, Duke sem er í raun eina liðið í Final Four sem "rank-að" var númer 1 á sínu svæði (South)  Duke lagði lið Baylor (Matt Sayman bakvörður Njarðvíkinga fyrir nokkrum árum spilaði þar sem fyrirliði) í vægast sagt frábærum leik þar sem allt það flottasta í boltanum var skartað. Má segja að Baylor hafi tapað á sama tölfræði þætti og kvennalið Keflavíkur í bikarúrslitum, fráköstunum þar sem að Duke hirti 23 sóknarfráköst. Nolan Smith bakvörður Duke átti stórleik með 29 stig, hans hæsta skor fyrir skólann. Þetta er fyrsta skiptið síðan 2004 að Duke fer í Final Four.
 
Leikirnir flestir hafa hingað til ráðist á síðustu sekúndum leikjanna og hrein unun að fylgjast með þessu frábæra sjónvarpsefni þar sem allir leikir líta út fyrir að vera úrslitaleikir. Það verða því andvökunætur næstu helgi þegar að Duke mætir West Virginia og Michigan spilar gegn Butler.  Úrslitaleikurinn er svo á aðfaranótt Þriðjudags. 
Fréttir
- Auglýsing -