Deildarmeistarar KR og Hamar mætast í sínum þriðja úrslitaleik í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 í DHL-Höllinni í Vesturbænum en staðan í einvíginu er 1-1 eftir sinn hvorn útisigur liðanna.
Einvígið hófst í Vesturbænum þar sem KR á heimaleikjaréttinn í seríunni. Hamar vann fyrsta leikinn örugglega 79-92. Taflið snérist svo í höndunum á Hvergerðinum þegar í Blómabæinn var komið þar sem KR jafnaði einvígið 1-1 með 69-81 útisigri og í leiknum setti bakvörðurinn Hildur Sigurðardóttir nýtt frákastamet.
Frákastametið í lokaúrslitum er 19 stykki í einum leik en Hildur tók einmitt 19 fráköst í Hveragerði en metið setti Heather Corby einmitt fyrir KR árið 2001 í lokaúrslitum gegn Keflavík. Saman deila þær frákastametið en fráköstin 19 hjá Hildi í síðasta leik eru flest fráköst Íslendings í lokaúrlsitum.
Það lið sem vinnur í kvöld tekur 2-1 forystu í einvíginu en þrjá sigra þarf til þess að verða Íslandsmeistari.
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski



