HomeFréttirScania Cup í þrítugasta sinn

Scania Cup í þrítugasta sinn

 
Um hverja páska hefur SBBK haldið Scania Cup mótið í bænum Södertaalje í Svíþjóð. Scania Cup er boðsmót og er það stefna mótshaldara að bjóða aðeins bestu félagsliðum Norðurlanda á mótið. Í ár munu fimm íslensk drengjalið mæta á mótið: 10. fl. UMFN (1994), 9. fl. KR (1995), 8. fl. KR (1996), 8. fl. Hauka (1996) og 7. fl. Fjölnis (1997).
UMFN og KR liðin hafa leikið mjög vel í vetur og landað titlum og eiga hugsanlega eftir að landa fleirum. Haukaliðið er mjög gott, en hefur ekki náð að stilla upp sterkasta liði sínu í verkefnum vetrarins. Fjölnisliðið lenti í neðsta sæti í síðustu umferð a-riðils. Þrátt fyrir það er liðið gott og tapaði liðið þremur leikjum með 6-10 stiga mun.
 
Á síðasta móti voru þrjú íslensk strákalið (ÍBV ’96, KR ’96 og Fjölnir ’94) og stóðu þau sig vel. ÍBV lék frábærlega á því móti og lenti í fjórða sæti og átti leikmann í úrvalsliði mótsins.
 
Það er orðið nokkuð langt síðan að íslensk lið hafa komist á verðlaunapall á Scania. Ef 10. fl. UMFN og 9. fl. KR munu eiga gott mót þá ættu þessi liða geta leikið um verðlaun.
 
Það eru nokkrir hlutir sem einkenna íslensku liðin sem eru að fara á Scania núna. T.d. að þau eru með reynslumikla/góða/áhugasama þjálfara og á bak við þessi lið öflugir foreldrahópar.
Fréttir
- Auglýsing -