Meistarar LA Lakers töpuðu sínum öðrum leik í röð og þriðja á fimm leikja útileikjahrinu þegar þeir léku gegn Atlanta Hawks í nótt. Lokatölur voru 109-92, en Lakers hafa ekki verið að sýna sínar bestu hliðar, auk þess sem miðherjinn Andrew Bynum er meiddur og verður sennilega frá næstu tíu dagana.
Með sigrinum komust Atlanta upp fyrir Boston Celtics, sem töpuðu gegn Oklahoma City Thunder í nótt, 104-109.
Dallas og Utah eru enn að berjast um annað sætið í Vesturdeildinni og unnu bæði leiki sína í nótt, en Phoenix hafa nú einnig blandað sér í baráttuna með því að vinna níu leiki í röð og eru rétt á eftir hinum fyrrnefndu.
Loks unnu Washington sinn fyrsta sigur eftir 16 leikja taphrinu, sem er sú lengsta í sögu félagsins.
Úrslit:
Charlotte 103 Philadelphia 84
Toronto 114 LA Clippers 92
Cleveland 101 Milwaukee 98
Atlanta 109 LA Lakers 92
Boston 104 Oklahoma City 109
Detroit 81 Miami 98
New Jersey 105 Phoenix 116
New Orleans 91 Washington 96
Memphis 102 Dallas 106
Minnesota 108 Sacramento 99
San Antonio 119 Houston 102
Utah 128 Golden State 104
Portland 118 New York 90



