Í kvöld hefjast undanúrslitin í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Annarsvegar mætast topplið Norrköping og Solna en hinsvegar Plannja og Uppsala. Helgi Már Magnússon leikur með Solna Vikings og telja flestir að Solnamenn eigi við ofurefli að etja í seríunni. Karfan.is ræddi við Helga um einvígið framundan.
,,Miðað sem maður heyrir þá býst fólk við því að Norrköping fari nokkuð örugglega í gegnum þessa seríu, enda kannski skiljanlegt miðað við gengi liðsins í vetur. En þetta er aftur á móti sama fólk og bjóst við því að við myndum tapa fyrir Södertelje. Það gerði sér náttúrulega ekki grein fyrir því að ég er með ca. 90% vinningshlutfall í Södertelje í gegnum árin. Þarf af leiðandi var ekki séns að við myndum tapa þeirri seríu,“ sagði Helgi sposkur en Solna lauk keppni í 4. sæti deildarinnar á meðan Norrköping varð deildarmeistari með 68 stig, 20 stigum meira en Solna sem hafnaði í 4. sæti.
,,Leikirnir við Norrköping í vetur hafa verið ansi jafnir og spennandi. Tveir þeirra hafa t.d. ráðist á lokasekúndunum Það er samt ekki alveg að marka þá leiki þar sem liðið okkar hefur breyst töluvert frá því í byrjun tímabils. Bæði fengum við þriðja þjálfara tímabilsins þegar um 10 leikir voru eftir fram að úrslitakeppni og svo fengum við 212cm nígerískan miðherja rétt fyrir úrslitakeppnina. Báðar þessar breytingar hafa breytt leikstíl okkar töluvert, og þá klárlega til hins betra. Þannig við förum í þessa seríu fullir sjálfstrausts enda höfum við verið að spila flottan bolta í síðustu leikjum,“ sagði Helgi en Solna mætti Södertalje í fyrstu umferðinni og vann þá seríu 3-1. Solna lenti 1-0 undir en vann næstu þrjá leiki í röð.
Hvernig ætla Helgi og félagar svo að leggja upp sinn leik gegn deildarmeisturunum?
,,Við ætlum að nýta okkur hraðann eins mikið og við getum og keyra á þá við hvert tækifæri þar sem þeir eru töluvert hærri en við og einnig þar sem þeir eru að keppa í úrslitakeppninni í Baltic deildinni á sama tíma. T.d. átti leikur tvö að vera núna á föstudaginn en hann hefur verið færður yfir á sunnudaginn þar sem þeir eru að keppa. En svo er það bara þetta klassíska spila góða vörn og gera færri mistök en þeir.“



