Í kvöld lýkur sjöttu umferðinni í Iceland Express deild karla. Stórleikur kvöldsins er viðureign KR og Njarðvík sem fram fer í DHL-Höllinni. Heitir Hamarsmenn taka svo á móti KFÍ í Hveragerði og Stjarnan fær Tindastól í heimsókn í Ásgarð.
Iceland Express deild karla kl. 19:15
Stjarnan-Tindastóll
Hamar-KFÍ
KR-Njarðvík
KR og Njarðvík eiga það sammerkt að hafa tapað í síðustu umferð. Njarðvík lá heima gegn Hamri og KR lá úti gegn Keflavík. Það má því eiga von á miklum bardaga í Vesturbænum í kvöld. Hamar tekur á móti KFÍ sem lá heima gegn Stjörnunni í síðustu umferð og eins og fyrr segir vann Hamar góðan sigur í Njarðvík og eru til alls líklegir um þessar mundir. Stólarnir fundu smjörþefinn af fyrsta deildarsigrinum í síðustu umferð þegar þeir töpuðu naumlega gegn meisturum Snæfells og fá það vandasama verkefni að eiga við Teit Örlygsson og Stjörnuna sem eru að skoppa til baka eftir að hafa dottið út úr 32 liða úrslitum í bikarnum á dögunum.
1. deild karla
19:15 Breiðablik-Ármann
19:15 Þór Akureyri-Skallagrímur
20:00 Valur-Þór Þorlákshöfn
2. deild karla
17:45 HK-Sindri
19:15 Akranes-Víkingur Ólafsvík




