Áhuginn er takmarkaður hjá lesendum Karfan.is til að fara og sjá sænskan Íslendingaslag ef marka má könnunina sem staðið hefur hér á síðunni síðustu daga. Spurt var hvort fólk myndi fara á Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta ef einhver ferðaskrifstofan myndi taka sig til og bjóða upp á slíka ferð.
Næstum helmingur svarenda eða 46% svöruðu spurningunni neitandi, 37% svöruðu játandi en 18% voru á báðum áttum og svöruðu kannski.
Komin er ný könnun inn á síðuna og að þessu sinni spyrjum við:
Á hvaða vefmiðli lest þú helst körfuboltafréttir?




