Fimm leikir fóru fram í meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þar sem Maccabi Electra rúllaði yfir Asseco Prokom. Með sigrinum er Maccabi á toppi A-riðils með fjóra sigra og einn tapleik líkt og Zalgiris. Chuck Eidson fór mikinn í liði Maccabi með 26 stig og 5 stolna bolta sem er hans persónulega met í meistaradeildinni.
Úrslit gærkvöldsins:
Zalgiris 73-65 BC Khimki
Zalgiris 73-65 BC Khimki
Maccabi Electra 99-58 Asseco Prokom
Brose Baskets 65-69 Unicaja
AJ Milano 71-81 Panathinaikos
Efes Pilsen 86-72 CSKA Moskva
Ljósmynd/ Bandaríski bakvörðurinn Chuck Eidson gerði 26 stig og stal 5 boltum í stórsigri Maccabi gegn Asseco Prokom í gær.




