HomeFréttirÞrír í röð hjá meisturum KR

Þrír í röð hjá meisturum KR

 
Íslandsmeistarar KR unnu sinn þriðja deildarsigur í röð í gær þegar Haukar komu í heimsókn í Iceland Express deild kvenna. Lokatölur í Vesturbænum reyndust 66-57 KR í vil þar sem Haukar gerðu nokkrar heiðarlegar tilraunir til þess að jafna um metin við KR. Hafrún Hálfdánardóttir var atkvæðamest í liði KR í með 13 stig.
Meistarar KR voru beittari í upphafi leiks með Hafrúnu Hálfdánardóttur í fantastuði. Að sama skapi áttu bikarmeistarar Hauka í vandræðum með að finna körfuna og þegar gestir í DHL-Höllinni gerast sekir um slíkt verður staðan oftar en ekki 20-6 að loknum fyrsta leikhluta sem varð raunin í gær.
 
Haukar bitu frá sér í öðrum leikhluta, gerðu sex stig í röð og minnkuðu muninn í 20-12 og þá bað Hrafn Kristjánsson um leikhlé til að koma sínum liðsmönnum aftur í takt. Leikhléið virkaði sem skyldi og KR tók völdin en urðu fyrir skakkaföllum þegar Margrét Kara Sturludóttir snéri sig á ökkla þegar hún lenti eftir frákast.
 
Haukar komust nærri í fjarveru Köru og minnkuðu muninn í 22-15 en KR leiddi engu að síður með 12 stigum í hálfleik, 37-25.
 
Varnarleikurinn var allsráðandi í upphafi síðari hálfleiks og höfðu liðin aðeins skorað tvö stig hvert eftir næstum því fjórar mínútur. Haukar skelltu sér í svæðisvörn og náðu muninum niður í 10 stig fyrir fjórða og síðasta leikhluta, 50-40.
 
Allt stefndi í rosalegan endasprett þar sem allt gekk upp hjá Haukum í upphafi fjórða leikhluta og náðu gestirnir að minnka muninn í 50-46. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Hafrún Hálfdánardóttir sögðu hingað og ekki lengra í liði meistaranna og stýrðu röndóttum til sigurs 66-57.
 
Umfjöllun og myndasafn eftir Tomasz Koldoziejski
Fréttir
- Auglýsing -