HomeFréttirSolna mætir á sterkan útivöll í dag

Solna mætir á sterkan útivöll í dag

 
Einn leikur fer fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag. Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings mæta þá Norrköping Dolphins á útivelli og verður á brattann að sækja hjá Solna enda Dolphins ofar en Vikings í deildinni og með sterkan heimavöll.
Fyrir leikinn í dag er Solna Vikings í 7. sæti deildarinnar með 8 stig en Norrköping Dolphins í 3. sæti með 14 stig. Logi er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar um þessar mundir með 18,9 stig að meðaltali í leik.
 
Fréttir
- Auglýsing -