HomeFréttirSigurður Einarsson í Hauka á ný

Sigurður Einarsson í Hauka á ný

  Sigurður Þór Einarsson sem hefur spilað og gengt fyrirliðastöðu hjá Horsens IC er genginn í raðir Hauka á ný og mun klára leiktíðina með Hafnarfjarðarliðinu.
 
Sigurður lék með Haukum áður en hann fluttist til Danmerkur og er nokkuð ljóst að hann mun vera kærkomin viðbót við Hauka þar sem að óvíst er hvort Sævar Ingi Haraldsson, sem er meiddur, geti beitt sér eitthvað frekar á leiktíðinni.
Sigurður sagði í samtali við karfan.is að lítið hafi verið um vinnu að fá í Danmörku en komið er að verklega þættinum í skólagöngu hans.
 
„Ég er að læra byggingarfræði í Horsens og þarf að koma heim til að fara í verknám. Það lá því beinast við að fara í Hauka en mér hefur liðið vel á Ásvöllum,“ sagði Sigurður og bætti við að honum litist vel á liðið.
 
„Þeir eru að standa sig vel og ég vona bara að ég geti hjálpað liðinu í baráttunni í deildinni.“
 
 
Fréttir
- Auglýsing -