HomeFréttirLogi beittur í sigri Solna

Logi beittur í sigri Solna

 
Einn leikur fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Helgi Már Magnússon heimsótti Loga Gunnarsson í Solnahallen. Helgi lék með Solna á síðasta tímabili en kom nú í heimsókn á gamla heimavöllinn með Uppsala Basket. Helgi og félagar höfðu ekki erindi sem erfiði þar sem Logi hrökk í gang á lokasprettinum. Lokatölur 82-75 Solna í vil.
Logi sem gerði 19 stig í leiknum og var stigahæstur hjá Solna skoraði 10 stig á síðustu mínútum leiksins. Þá var hann einnig með 3 fráköst og 1 stolinn bolta í leiknum. Helgi Már gerði 16 stig í liði Uppsala og tók 6 fráköst.
 
Solna og Uppsala eru jöfn eftir leik kvöldsins í 5.-6 sæti deildarinnar, bæði lið með 26 stig. Á morgun verða svo Hlynur og Jakob á ferðinni með Sunsvall Dragons þegar Drekarnir taka á móti 08 Stockholm HR.
 
Fréttir
- Auglýsing -