HomeFréttirJordan-strákarnir lögðu Boston: Enn tapar Cleveland

Jordan-strákarnir lögðu Boston: Enn tapar Cleveland

 
Cleveland Cavaliers hafa nú tapað 25 deildarleikjum í röð í NBA deildinni en í nótt máttu þeir lúta í lægra haldi gegn Dirk Nowitzki og félögum í Dallas Mavericks. Þá fóru Boston Celtics erindisleysu til Charlotte þar sem Jordan-strákarnir í Bobcats höfðu betur.
Dallas 99-96 Cleveland
Dirk Nowitzki fékk mikið lófatak í öðrum leikhluta þegar það var tilkynnt í húsinu að hann hafi verið valinn í Stjörnuleik NBA deildarinnar tíunda árið í röð. Jason Terry var svo stigahæstur hjá Dallas með 23 stig en Þjóðverjinn góðkunni bætti við 12 stigum og 6 fráköstum. Hjá lánlausu liði Cleveland var JJ Hickson með 26 stig og 12 fráköst. Cleveland hefur leikið fleiri útileiki þetta tímabilið en nokkurt annað NBA lið en nú sér fyrir endann á því þar sem næstu átta leikir liðsins verða á heimavelli.
 
Charlotte 94-89 Boston
Gerald Wallace gerði 19 stig og tók 16 fráköst í liði Bobcats en Ray Allen setti 25 stig í liði Boston. Sigur Bobcats var nokkuð athyglisverður þar sem Stephen Jackson var vísað af velli í fyrri hálfleik en hann er stigahæsti leikmaður liðsins. Með sigrinum í nótt batt Bobcats enda á sex leikja taphrinu sína gegn Boston. Þá vantar Ray Allen aðeins eina þriggja stiga körfu til viðbótar til að jafna þriggjastigamet goðsagnarinnar Reggie Miller.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Memphis 84-93 Lakers
New Orleans 92-104 Minnesota
Denver 103-106 Houston
Portland 109-103 Chicago
Sacramento 104-107 Utah
Golden State 92-104 Phoenix
 
Mynd/ Gerald Wallace og Bobcats lögðu Boston í nótt
 
Fréttir
- Auglýsing -