HomeFréttirLeikir dagsins: Fjölnir fær Njarðvík í heimsókn

Leikir dagsins: Fjölnir fær Njarðvík í heimsókn

 
Einn leikur er í Iceland Express deild kvenna í dag þegar Fjölnir tekur á móti Njarðvík kl. 19:15 í Dalhúsum í Grafarvogi. Liðin leika í B-riðli deildarinnar og baráttan er hörð um tvö laus sæti í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Tvö efstu lið B-riðils komast í fyrstu umferðina, liðið í 3. sæti situr eftir og liðið í 4. sæti fellur í 1. deild kvenna.
Athugið að viðureign Fjölnis og Njarðvíkur verður í beinni netútsendingu hjá Fjölni, sjá http://fjolnir.is/fjolnir/karfa/ (neðst hægra megin á síðunni)
 
Þá eru fjórir leikir í drengjaflokki í kvöld
 
20:00 Stjarnan-ÍR
20:00 Njarðvík-Keflavík
20:00 Grindavík-FSu
21:00 Fjölnir-KR

Mynd/ [email protected]Erla Sif Kristinsdóttir og Fjölniskonur fá Njarðvík í heimsókn í kvöld.

 
Fréttir
- Auglýsing -