HomeFréttirAxel og Guðni einir eftir

Axel og Guðni einir eftir

 
Nú eru aðeins tveir íslenskir leikmenn eftir í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik þar sem Magnús Þór Gunnarsson er fyrir nokkru kominn heim og nú Sigurður Þór Einarsson. Eftir standa kapparnir Axel Kárason hjá Værlöse og Guðni Heiðar Valentínusson hjá Bakken Bears.
Axel var á ferðinni á sunnudag með Værlöse þegar liðið fékk Svendborg Rabbits í heimsókn. Svendborg fékk að hafa fyrir hlutunum en sluppu þó með fjögurra stiga sigur, 86-90 eftir framlengdan leik.
 
Axel lék í 25 mínútur í leiknum og skoraði 4 stig, þá var hann einnig með 2 fráköst og 1 stoðsendingu en eftir leikinn á sunnudag er Værlöse í 8. sæti deildarinnar með 16 stig en BK Amager og Aalborg Vikings eru á botni deildarinnar.
 
Guðni var ekki í toppliði Bakken Bears á sunnudag sem lagði SISU 90-80 á heimavelli. Bakken hefur nú fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar.
 
Mynd/ Axel Kárason fór í framlengingu gegn Svendborg um helgina.
 
Fréttir
- Auglýsing -