Þrír leikir fara fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15. Í Vesturbænum mætast KR og Hamar en um síðustu helgi mættust liðin einmitt á sama stað í undanúrslitum Poweradebikarsins þar sem KR-ingar urðu fyrsta liðið á tímabilinu til þess að leggja Hamar. Hvergerðingar eru enn ósigraðir í deildinni og ætla væntanlega að kvitta fyrir bikartapið í kvöld svo von er á miklum slag í DHL-Höllinni.
Í öðrum leikjum kvöldsins mætast Haukar og Keflavík að Ásvöllum og Grindavík fær Snæfell í heimsókn í Röstina en hið sama verður uppi á teningnum annað kvöld þegar Grindavík tekur einmitt á móti Snæfell í Röstinni í Iceland Express deild karla.
Einn leikur er í 1. deild karla í kvöld þegar Laugdælir taka á móti Þór úr Þorlákshöfn kl. 19:45 á Vatninu. Þá mætast Hekla og Hrunamenn kl. 20:00 á Hellu í 2. deild karla og í unglingaflokki karla mætast Haukar og Snægrímur kl. 21:15 að Ásvöllum í Hafnarfirði.





