HomeFréttirHamar/Þór lagði Fjölni í unglingaflokki

Hamar/Þór lagði Fjölni í unglingaflokki

 
Unglinaflokkur karla hjá Hamri/Þór spilaði einn leik um helgina við Fjölni, leikurinn fór fram seinnipart laugardags og var óhætt að segja að Hamars/Þórs-menn hafi verið komnir í betri gírinn gegn feiknarlega sterku lið Fjönis.
Hamar/Þór byrjaði betur og komust fimm stigum yfir (9-5) þá hrukku Fjölnismenn í gang og leiddu að loknum fyrsta leikhluta með fimm stigum (17-22). Hamar/Þór byrjaði annan leikhluta sterkt og komst fljótlega fjórum stigum frammúr (28-24) og um miðjan annan leikhluta var munurinn kominn í sex stig (35-29) þá bættu Fjölnismenn aftur í og í hálfleik munaði aðeins einu stigi á liðunum (44-43).
 
Í seinn hálfleik hélt sami barningurinn áfram þótt Hamar/Þór væri alltaf aðeins á undan og að loknum þriðja leikhluta munaði fimm stigum á liðunum (65-60). Það var síðan í fjórða leikhluta sem Hamar/Þór gerði út um leikinn og í lokin var munurinn kominn í fjórtán stig (94-80) og sanfærandi sigur hjá Hamar/Þór í höfn. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á stórleik Emils Þorvaldssonar í umfjöllun um leikinn, strákurinn var funheitur allan tíman og setti niður 25 stig og varla hægt að segja að hann klikkaði á skoti. Einnig var Þorsteinn gríðarlega traustur á mikilvægum augnablikum og bætti 23 stigum við sannarlega stórleikur hjá þessum tveimur höfðingjum. Á meðan fór Ægir Þór Steinarsson mikinn í liði Fjölnis með 30 stig. 
 
Mynd/ Tomasz: Miðherjinn Ragnar gerði 13 stig í sigurleik Hamars/Þórs
 
Umfjöllun: Daði Steinn


 
Fréttir
- Auglýsing -